Skólasókn

Reglur um skólasókn 

Lögum samkvæmt eru foreldrar ábyrgir fyrir því að börn þeirra sæki skóla. Kennarar og ritari skrá skólasókn í mentor og þar geta nemendur, foreldrar og kennarar fylgst með ástundun. Nemendum ber að mæta í allar kennslustundir og eiga frá upphafi skólagöngu að temja sér stundvísi. Veikindi skal tilkynna til ritara í s. 441-4600 eða á mentor. Umsjónarkennari gefur leyfi sem nemur einum skóladegi en lengra leyfi þarf að sækja um á heimsíðu skólans http://www.karsnesskoli.is/ eða í tölvupósti til stjórnenda. Leyfisbeiðnir eiga alltaf að berast með fyrirvara, þ.e. ekki er hægt að óska eftir leyfi eftir á.

 

Posted in Fréttaflokkur.